Innlent

Innbrot á Akureyri

Innbrot var framið í Giljahverfi á Akureyri í gærdag en húsráðendur uppgötvuðu það þó ekki fyrr en þeir komu heim í gærkvöldi. Óljóst er hvernig þjófarnir komust inn í íbúðina því þeir skyldu ekki eftir sig nein verksummerki eða skemmdir.

Þeir komust hinsvegar á brott með sjónvarp heimilisins, fartölvu og eitthvað af skartgripum. Að sögn lögreglunnar á Akureyri eru innbrot af þessu tagi mjög fátíð í bænum og er málið í rannsókn.

Þá var einn ökumaður tekinn á Akureyri í nótt, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×