Innlent

Vann ferð til Flórída fyrir fjölskylduna

Jóhannes Ásbjörnsson og Sigmar Vilhjálmsson útvarpsmenn á Bylgjunni, Viktor Steinn Sighvatsson, María S. Jensen aðalvinningshafi sumarsins, Sylvía Karólína Sighvatsdóttir, Inga Huld Sigurðardóttir markaðsstjóri Getspár og Getrauna og Stefán Snær Konráðsson framkvæmdastjóri Getspár og Getrauna
Jóhannes Ásbjörnsson og Sigmar Vilhjálmsson útvarpsmenn á Bylgjunni, Viktor Steinn Sighvatsson, María S. Jensen aðalvinningshafi sumarsins, Sylvía Karólína Sighvatsdóttir, Inga Huld Sigurðardóttir markaðsstjóri Getspár og Getrauna og Stefán Snær Konráðsson framkvæmdastjóri Getspár og Getrauna Mynd/EJ
Dregið var í 25 ára afmælisleik Lottó og Bylgjunnar í þætti Simma og Jóa í sumarlok. Simmi og Jói hringdu í Maríu S. Jensdóttur og færðu henni þær fréttir að hún hefði unnið Flórída ferð fyrir fjölskylduna.

Í síðustu viku var fagnaðarfundur á skrifstofu Íslenskrar Getspár þar sem María fékk afhentan vinninginn.

Fjölskyldan er alsæl og búið er að plana sumarfríið næsta vor þegar farið verður til Flórída.

„Bylgjan óskar fjölskyldunni til hamingju, þakkar öllum þeim þúsundum sem tóku þátt og óskar Lottó til hamingju með 25 árin,“ segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×