Innlent

Reynir að fá viðskiptavini annarra lögmanna á sína stofu

Atli Helgason starfaði áður sem lögmaður en missti réttindin þegar hann var dæmdur fyrir manndráp árið 2001.
Atli Helgason starfaði áður sem lögmaður en missti réttindin þegar hann var dæmdur fyrir manndráp árið 2001. Mynd/stöð2
Lögmannafélagi Íslands hafa borist kvartanir vegna starfsmanns lögmannsstofu sem reynir að fá viðskiptavini annarra lögmanna á sína stofu. Félagið hefur til skoðunar hvort um er að ræða brot á siðareglum lögmanna.

Kvörtunin lýtur að því að fulltrúi á lögmannsstofu Guðmundar Ragnarssonar héraðsdómslögmanns, Versus lögmönnun, hafi ítrekað haft samband við viðskiptavini annarra lögmanna og reynt að fá þá í viðskipti við Guðmund.

Umræddur starfsmaður er Atli Helgason, sem áður starfaði sem lögmaður en missti réttindin þegar hann var dæmdur fyrir manndráp árið 2001.

Atli vann mikið að málefnum fanga þegar hann afplánaði dóm sinn á Litla Hrauni, og var þar meðal annars trúnaðarmaður fanga og talsmaður þeirra út á við.

Þeir lögmenn sem kvartað hafa undan Atla við Lögmannafélagið telja að Atli nýti sér þau sambönd sem hann myndaði við fangana til að finna viðskiptavini fyrir Versus lögmenn, en þeir telja það brjóta í bága við siðareglur lögmanna.

Framkvæmdastjóri Lögmannafélags Íslands, Ingimar Ingason, staðfestir að félaginu hafi borist athugasemdir vegna háttarlags Atla og að málið sé þar til skoðunar.

Ingimar rekur ekki minni til að viðlíka mál hafi komið inn á borð Lögmannafélagsins.

Úrskurðarnefnd lögmanna hefur hins vegar aðeins lögsögu yfir lögmönnum, Atli Helgason er það ekki eftir að hann missti réttindi sín, en það er því til skoðunar hvort Guðmundur, sem ólíkt Atla heyrir undir Lögmannafélagið, beri ábyrgð á hinum meintu brotum á siðareglum.

Guðmundur hafði ekki heyrt af kvörtuninni þegar fréttastofa náði tali af honum í dag. Hann vísar því alfarið á bug að hann sjálfur eða hans starfsmaður hafi gerst brotlegir á nokkurn hátt.

Guðmundur undrast að slíkar athugasemdir hafi verið gerðar við Lögmannafélagið og segir að enginn skipti um lögmann nema hann vilji það sjálfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×