Innlent

92,2 prósent leikskólakennara samþykktu kjarasamning

Mynd tengist frétt ekki beint
Mynd tengist frétt ekki beint mynd úr safni
Leikskólakennarar samþykktu nýgerðan kjarasamning við sveitarfélögin með afgerandi hætti í dag. Kosið var rafrænt og greiddu 1.476 atkvæði, eða 78,8 prósent félagsmanna í félagi leikskólakennara. 92,2 prósent sögðu já og 5,6 prósent sögðu nei. 2,2 félagsmanna skiluðu auðum seðlum.

Kjarasamningurinn var undirritaður í lok síðasta mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×