Vill ekki fangelsi á Hólmsheiði 6. september 2011 12:14 Björgvin G. Sigurðsson.
Björgvin G. Sigurðssyni líst illa á hugmynd innanríkisráðherra um byggingu nýs öryggisfangelsis á Hólmsheiði og segir að mæta megi uppsafnaðri eftirspurn eftir þjónustunni á hagkvæmari hátt. Engin ákvæði séu í fjárlögum um slíka nýja stórbyggingu og því þurfi umræðu um málið í sölum Alþingi. Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður og fulltrúi í fjárlaganefnd, hefur aðrar hugmyndir en Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, um hvernig bæta megi fangelsismál hér á landi. „Ég held að það blasi við, til að fá sem mest út úr fjármunum ríkisins að byggja við hið stórgóða öryggisfangelsi við Eyrarbakka, Litla Hraun, en byggja nýtt komu og gæsluvarðhaldsfangelsi á Reykjavíkursvæðinu, menn geta valið því stað hvar sem er, fyrir miklu minni fjármuni. Þarna er ráðherra að tala um nýtt fangelsi, öryggis- og gæsluvarðahalds fyrir á þriðja milljarð króna,“ segir Björgvin. Hann segir að anna megi uppsafnaðri eftirspurn eftir þjónustunni á þennan hátt og jafnvel hraðar en ef hugmynd Ögmundar verður ofan á. Stofnkostnaður við nýtt öryggisfangelsi á Hólmsheiði, nokkra kílómetra frá hinu á Eyrarbakka er alltof mikill. Það gefur augaleið og það kemur aldrei í staðinn fyrir ferðakostnað og sparnað í því,“ segir Björgvin. Þá segir hann eina ákvæðið í fjárlögum, um byggingu á nýju fangelsi, sé í 6. grein, þar sem segir að heimild sé að leigja eða kaupa nýtt gæsluvarðhaldsrými og selja það gamla. Ekki orð um nýja stórbyggingu sem hýsti nýtt gæsluvarðhalds- og öryggisfangelsi. Það er stefnubreyting sem ekki hefur hlotið umræðu eða afgreiðslu á Alþingi. Þetta þarf að leiða til lykta á Alþingi, vilji ráðherrans er ljós og það er hið besta mál og nú skulum við taka málefnalega umræðu um faglegar og fjárhagslegar forsendur fyrir þessum vilja ráðherrans sem ég held að eigi eftir að hafa mikil áhrif á framvindu málsins,“ segir Björgvin og bætir við: „Alveg eins og að velferðarráðherra einn tekur ekki ákvörðun um nýjan Landspítala, það er ákveðið á Alþingi þó að tillaga og vilji ráðherrans blasi við.“ Björgvin hefur óskað eftir umræðu utan dagskrár á Alþingi við innanríkisráðherra um málið á september þinginu.
Mest lesið Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Innlent Halla verði að upplýsa um bílakaupin Innlent Gul viðvörun vegna mikillar rigningar Veður Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Biður eiginkonuna afsökunar á að hafa misst giftingarhringinn í Signu Erlent Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Innlent Ellefu ungmenni létust í loftárás á fótboltavöll Erlent „Rúm tuttugu ár síðan við sáum þessa þróun fyrir“ Innlent Börn stærsti hluti látinna eftir árás á skóla Erlent Óljóst hvað veldur svo stórum jökulhlaupum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Meira en nóg að gera á Herjólfi í sumar Óljóst hvað veldur svo stórum jökulhlaupum „Vitum ekki til þess að nokkur hafi verið í hættu“ „Rúm tuttugu ár síðan við sáum þessa þróun fyrir“ Óvissustig vegna jökulhlaups og Druslugangan Lýsa yfir óvissustigi og skipa fólki að yfirgefa svæðið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Áhyggjur af gasmengun vegna jökulhlaups Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sjá meira