Innlent

Vill nánari skýringar frá Evrópusambandinu

Jón Bjarnason
Jón Bjarnason
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, telur nauðsynlegt að fulltrúar Evrópusambandsins skýri með fullnægjandi og tæmandi hætti hvað átt er við með þeim skilyrðum, sem sambandið setur fyrir því að hafnar verði samningaviðræður um landbúnaðarmál við ESB.

Ráðherra barst í dag rýniskýrsla sambandsins þar sem farið var yfir umrædd skilyrði. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að ráðherra telji að það þurfi að liggja ljósar fyrir að sú áætlunargerð sem ESB krefst, feli ekki í sér aðlögun né breytingar á lögum eða regluverki, áður en aðild hefur verið samþykkt. Þá er ekki sjálfgefið að lögð sé fram áætlun um verkefni sem samningsaðilar hafa ekki rétt um né komist að samkomulagi um hvort henti Íslandi.

„Ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála mun hér eftir sem hingað til leggja áherslu á að fylgja samþykkt alþingis um aðildarviðræður en að sama skapi er brýnt að þau verkefni sem ráðist er í rúmist innan þeirra heimilda sem Alþingi hefur veitt. “








Fleiri fréttir

Sjá meira


×