Innlent

Dæmd fyrir að framvísa röngu vegabréfi

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur.
Sómölsk kona var dæmd í eins mánaðar langt fangelsi í héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir misnotkun skjals þegar hún framvísa vegabréfi annarrar konu þegar hún kom til landsins á fimmtudaginn í síðustu viku.

Konan var á leiðinni til Kanada og kom með flugi Stokkhólmi í Svíþjóð. Hún millilenti hér á landi og framvísaði þá röngu vegabréfi í þeim tilgangi að blekkja vegabréfseftirlitsmenn.

Konan játaði sekt sína skýlaust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×