Innlent

Harður þriggja bíla árekstur á Miklubraut

Mynd/árekstur.is
Harður árekstur þriggja bifreiða  varð á Miklubraut skammt austan við Skaftahlíð í dag. Einn bíllinn skemmdist svo mikið að nauðsynlegt var að flytja hann á brott með kranabifreið. Í tilkynningu frá árekstur.is kvartaði einn ökumanna undan smávægilegum meiðslum. Þá þurfti að kalla út slökkvilið höfuðborgarsvæðisins til að þrífa olíu sem lekið hafði á götuna í kjölfar óhappsins.

Að öðru leyti hefur umferðin gengið mjög vel á höfuðborgarsvæðinu í dag og lítið um umferðaróhöpp sem tilkynnt hafa verið til Árekstur.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×