Innlent

Fjórtán stútar teknir um helgina

Ölvunarakstur.
Ölvunarakstur.
Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, níu á laugardag og fjórir á sunnudag.

Þetta voru tólf karlar á aldrinum 20-44 ára og tvær konur, 20 og 21 árs. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.

Um helgina voru tíu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag og sex á sunnudag.

Þetta voru átta karlar á aldrinum 17-32 ára og tvær konur, 22 og 23 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×