Innlent

Stálu verkfærum fyrir þrjár milljónir

Aðfaranótt síðastliðins miðvikudags var brotist inn í hjólbarðaverkstæði við Minni Borg í Grímsnesi og þaðan stolið loftlykli, topplyklasettum, tveimur hjólatjökkum og fleiri minni verkfærum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.

Verðmæti þjófnaðarandlagsins er talið vera hátt í þrjár milljónir.  Þjófarnir höfðu bundið spotta í hurð og í bíl og ætlað að kippa henni út. Það gekk ekki eftir en þeim tókst með einhverjum hætti að lyfta hurðinni og komast inn.

Engar vísbendingar eru um hverjir hafi staðið að þessum innbrotum. Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar að hafa samband í síma 480 1010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×