Erlent

Forsetafrúin setur fjölmiðlabann á börnin sín

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Carla Bruni ásamt eiginmanni sínum, Nicolas Sarkozy forseta Frakklands.
Carla Bruni ásamt eiginmanni sínum, Nicolas Sarkozy forseta Frakklands. Mynd/ AFP.
Carla Bruni, eiginkona Nicolas Sarkozy forseta Frakklands, segir að hún muni gera hvað sem er til þess að hindra það að barnið sem hún ber undir belti komist í kastljós fjölmiðla. Í samtali við TF1 sjónvarpsstöðina í Frakklandi sagði hún að hún myndi gera hvað sem í hennar valid stæði til þess að koma í veg fyrir að myndir af barninu kæmust í fjölmiðla. Bruni sagðist hafa gert alvarleg mistök í það eina skipti sem hún leyfði myndatökumönnum að taka myndir af tíu ára gömlum syni sínum, sem hún átti áður en hún kynntist Sarkozy. Bruni sagði líka að hún hefði ekki hugmynd um hvort hún ætti von á strák eða stelpu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×