Erlent

Eldandi fjölskyldumaður í London

Kjartan Guðmundsson skrifar
Paul Young er væntanlegur til Íslands.
Paul Young er væntanlegur til Íslands. Mynd/ WireImage.
Sálar popparinn og eitísgoðið Paul Young heldur tónleika í Hörpu í byrjun október. Kjartan Guðmundsson sló á þráðinn til söngvarans í London, fræddist um smellina, röddina og átrúnaðargoðin og náði að kría út úr honum uppskrift að dýrindis pastasósu.

„Nei. Ég veit ekki hvernig þessi saga byrjaði, en raunveruleikinn er sá að ég hef aldrei getað neitt í fótbolta. Ég var hreinlega svo arfaslakur að ég var ekki einu sinni valinn í lið þegar ég var skóla," segir sálarpopparinn Paul Young þegar blaðamaður byrjar á að spyrja hann út í sögusagnir þess efnis að hann hafi verið efnilegur knattspyrnumaður á æskuárum sínum í Luton, sem er ekki fjarri London.

„Ég reyndi af veikum mætti að gerast stuðningsmaður Luton Town-liðsins, en ég hef engan áhuga á fótbolta. Eina íþróttagreinin sem ég nenni að fylgjast með er tennis. Þegar Wimbledon-mótið fer fram á ég mjög erfitt með að koma nokkru öðru í verk því ég er upptekinn við að fylgjast með," bætir hann við og segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með frammistöðu síns uppáhaldstennisleikara, Rafael Nadal, þegar sá tapaði úrslitaeinvíginu gegn Novak Djokovic í byrjun júlí síðastliðins.

Tónlistarmaðurinn, sem gaf út sína stærstu smelli á níunda áratug síðustu aldar, heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu hinn 4. október næstkomandi.



Syngur alla smellina
„Ég vildi óska þess að ég hefði komið til Íslands fyrir 25 árum, þegar þessi lög voru ný," segir Young og hlær, spurður að því hverju tónleikagestir geta búist við í Hörpu. Hann staðfestir svo að á dagskránni verði fyrst og fremst smellir af fyrstu plötunum hans, No Parlez frá 1983 og The Secret of Association frá 1985, lög á borð við Love of the Common People, Come Back and Stay, Wherever I Lay My Hat (That?s My Home), Everytime You Go Away og Senza Una Donna, sem allir áhugamenn um eitístónlist ættu að þekkja eins og handarbakið á sér. Þó gæti verið að örfá lög af plötunni Rock Swings frá 2006, þar sem Young syngur rokklög frá ýmsum tímum með fulltingi swing-hljómsveitar, fái að fljóta með.

„Ég fann nýlega frábæra danska hljómsveit til að spila með mér. Meðlimirnir eru yngri en þeir sem ég hef spilað með áður og eru með tæknilegu hliðina á hreinu. Allan minn feril hef ég neitað að nýta tölvur á tónleikunum mínum, en núna virðast allir gera það og ég óttast að verða útundan. Danski gítarleikarinn hefur meðal annars spilað með Kid Creole and The Coconuts svo hann þekkir vel sálartónlistina og fönkið sem ég vil framkalla."

Young hefur ekki gefið út plötu með nýju efni síðan téð swing-plata kom út fyrir fimm árum en segist nú huga á upptökur með dönsku undirleikurunum með nýja plötu í huga. „Ég ætlaði að gera plötu með þýskri hljómsveit sem spilaði með mér um hríð en svo þurfti ég að standa í flutningum og Tex-Mex hljómsveitin mín, Los Pacaminos, tekur líka sinn tíma. Vonandi kemur ný plata út fljótlega," útskýrir Young.



Röddin í fínu lagiEins og áður sagði ólst söngvarinn upp í Luton, en hann er á svipuðum aldri og frumherjar pönksins í Englandi. Hann rekur aðdáun sína á bandarískri sálartónlist til þeirra hljómsveita sem hann hlustaði mest á sem unglingur, rokksveita eins og Jethro Tull, Mott the Hoople, The Who og Free. "Blúsinn var undirliggjandi hjá þessum böndum. Í viðtölum töluðu meðlimir þeirra um að menn eins og Freddie King væru miklir áhrifavaldar og auðvitað vildi ég hlusta á sömu tónlist og átrúnaðargoðin. Í kjölfarið fór ég svo að hlusta á Wilson Pickett, Joe Tex og Otis Redding og svo gekk þetta koll af kolli. Ég hef alltaf hrifist af góðum söngröddum."

Viðvarandi fréttir í slúðurdálkum dagblaða um miðjan níunda áratuginn voru einmitt tíðindi þess efnis að Young, sem þá var á hátindi frægðar sinnar, ætti í vandræðum með raddböndin og ætti það til að missa röddina reglulega. Hann lofar því þó að röddin sé í góðu lagi í dag. Önnur saga gekk út á að söngvarinn glímdi við stam og þann orðróm staðfestir Young.

„Ég stamaði mikið sem barn og var sendur til sérfræðings en það hjálpaði lítið. Það var ekki fyrr en ég fór að syngja með hljómsveit og sjálfstraustið jókst sem stamið minnkaði. En þegar ég sló í gegn jókst það aftur, sérstaklega þegar ég var í viðtölum og var mjög þreyttur. Nú nýlega var ég í tveggja tíma löngu útvarpsviðtali hjá Gary Crowley sem stamar líka og við þurftum að gæta þess afar vandlega að byrja ekki að stama, því þá hefðum við hrint hvor öðrum af stað og stamað allan þáttinn. Það var mjög fyndið," segir Young og hlær.

Hann bætir við að sjálfur hafi hann fengið nokkur tilboð um að stjórna þáttum í útvarpi. „Það væri mjög gaman að sjá um útvarpsþátt, en ég er alltaf beðinn um að spila bara eitístónlist. Ég á risavaxið safn af tónlist hvaðanæva að úr heiminum og vildi miklu heldur spila eitthvað af henni."

Fjarvera Bowie heppilegEftir að hafa slegið rækilega í gegn í Bretlandi með fyrstu plötunni sinni reyndi Young fyrir sér á Bandaríkjamarkaði, með takmörkuðum árangri framan af. Vatnaskil urðu þegar honum hlotnaðist sá heiður að syngja fyrstu línuna í góðgerðar-jólalaginu Do The Know It?s Christmas?, sem fór á topp vinsældalista um allan heim og skartaði flestum poppstjörnum Breta á þeim tíma undir nafninu Band Aid.

Young minnist dagsins í lok nóvember 1984 sem upptökur fóru fram á laginu með hlýju. „Þetta var frábært. Þegar ég mætti í hljóðverið hélt ég að ég ætti bara að syngja eina línu í miðju lagsins, en Bob Geldof dró mig til hliðar og sagði mér að ég ætti að syngja upphafslínurnar. Síðar frétti ég að ástæðan var sú að David Bowie, sem átti að vera aðalstjarnan og byrja lagið, var fastur í Japan á tónleikaferðalagi og komst ekki."

Fjarvera Bowie kom Young vel því í kjölfar vinsælda lagsins öðlaðist hann frekari vinsældir í Bandaríkjunum. „Bandaríkjamennirnir skilja oft ekki evrópska tónlist," rifjar Young upp. „Þeir vilja hólfa allt niður og alls ekki hafa tónlist of fjölbreytilega. Rokk á að vera rokk, soul á að vera soul og þar fram eftir götunum. Þeim þótti fyrsta platan mín ruglingsleg og vissu ekki í hvaða dilk þeir ættu að draga mig. Þegar Band Aid-lagið kom út voru Bandaríkjamenn kunnugir Boy George, George Michael, Bono og Duran Duran en ekki mér. En stuttu síðar kom önnur platan mín út og þá fór lagið Everytime You Go Away á toppinn í Bandaríkjunum, eins og víða annars staðar í heiminum."



Kokkabók á leiðinniÞegar blaðamaður nær tali af Young er hann staddur á heimili sínu í Norður-London, þar sem hann segist lifa fremur venjubundnu fjölskyldulífi ásamt eiginkonu sinni og fjórum börnum á aldrinum fjögurra til 24 ára. Elsta barnið, dóttirin Levi, hefur fylgt í fótspor föður síns inn í skemmtanabransann og starfar sem fyrirsæta.

„Levi er mjög hávaxin og mjög yndisleg," segir Young stoltur. „Ég er mikill fjölskyldumaður og það skemmtilegasta sem ég geri er að eyða tíma með börnunum mínum. Í gegnum þau heyri ég líka nýjustu tónlistina, sem mér líkar misvel við. Mér þótti Lady Gaga frábær í upphafi en nýjasta platan hennar er ekki nógu góð. Börnin mín eru sammála mér í því að nýju lögin hennar hljómi eins og Eurovision-lög. Ekki það að ég sé að gera lítið úr Eurovision," segir Young og skellir upp úr.

Önnur ástríða söngvarans, sem einnig tengist fjölskyldulífinu, er matargerð. Fyrir fáum árum komst hann í undanúrslit sjónvarpsþáttarins Celebrity MasterChef á BBC og gerði garðinn einnig frægan í öðrum slíkum, Hell?s Kitchen á ITV. Aðspurður segir hann einn sinn stærsta draum að opna sinn eigin veitingastað.

„Á hljómleikaferðalögum á níunda áratugnum borðaði ég mikið af vondum mat, svo ég fór að venja mig á að panta borð á bestu veitingastöðunum í borgunum sem ég heimsótti. Þegar ég hélt tónleika í Louisiana hreifst ég svo af cajun-matargerð að ég fór að tileinka mér hana og elda fyrir fjölskyldu og vini. Fyrir nokkrum árum vann ég svo í nokkra mánuði, einu sinni í viku, við að elda cajun-mat ofan í 120 manns á veitingastað í nágrenninu. Það er mjög erfið vinna en afar skemmtileg."

Spurður hvort kokkabók eftir söngvarann sé á leiðinni segir hann svo vel geta farið. „Undanfarið hef ég verið að vinna með ljósmyndara fyrir bók sem ég ætla að nefna "Paul Young on His Travels" og samanstendur af mínum bestu uppskriftum að cajun-, mexíkóskum og ítölskum mat, en líka einföldum uppskriftum fyrir börn. Þessa dagana leitum við að útgefanda að bókinni. Ég hef fyrir reglu að kanna matargerðarlist allra landa sem ég heimsæki og mun örugglega bragða á ferskum fiski á Íslandi."



Getur ekki beðiðÞetta verður í fyrsta sinn sem Young heimsækir Ísland og segist hann hlakka mjög til tónleikanna. „Annars veit ég lítið um landið annað en það sem meðlimir Blur hafa sagt um það í viðtölum."

Að lokum spyr hann hvernig líklegt sé að veðrið verði í Reykjavík í byrjun október. "Rigning og kuldi? Nú jæja, það er alveg eins og hér í London. En ég get samt ekki beðið eftir að koma."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×