Erlent

Talíbanar bera ábyrgð á skotárásum í Kabúl

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það er barist í Kabúl þessa stundina.
Það er barist í Kabúl þessa stundina. Mynd/ AFP.
Talíbanar hafa lýst ábyrgð á hendur sér vegna sprengjuárása og skotbardaga í Kabúl, í höfuðborg Afganistan, í morgun. Lögreglumenn í Kabúl segja að skæruliðar skjóti nú skotflaugum að sendiráði Bandaríkjanna í Afganistan. Auk sendiráða er skotið á höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í borginni. Öryggisverðir hafa lokað vegum í kringum bandaríska sendiráðið og aðrar stofnanir í kring. Samkvæmt frásögn Sky liggur ekki fyrir hvort um sjálfsmorðssprengjuárás var að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×