Viðskipti erlent

Allt um iPhone 4S - myndband

Tim Cook, forstjóri Apple, á kynningunni í dag.
Tim Cook, forstjóri Apple, á kynningunni í dag. Mynd/AFP
Apple kynnti í dag nýja útgáfu af iPhone símanum. Margir aðdáendur símans hafa eflaust orðið fyrir einhverjum vonbrigðum því nýi síminn er ekki iPhone 5, eins og margir höfðu spáð, heldur iPhone 4S.

Síminn er þó töluvert frábrugðinn þeim gamla. Hann lítur alveg eins út en að innan er hann gjörbreyttur. Örgjörvi símans er tvisvar sinnum öflugri en sá sem var í iPhone 4. Rafhlaðan miklu betri og einnig tekur minni tíma að hlaða niður skrám á þráðlausa netinu.

Myndavélin er mikið betri og til að mynda tekur einungis 1,1 sekúndu að taka mynd og þá er einnig 1080p HD myndbandupptökuvél á símanum.

Einnig er hægt að tala við símann og spyrja hann spurninga. Þú er einnig hægt að spyrja símann að því hvenær næsti fundur er eða spurninga sem síminn finnur á Google eða öðrum vefsíðum. Þá geturðu einnig fylgst með því hvar vinir þínir eru staddir.

Nýi síminn kemur út í Bandaríkjunum þann 14. október næstkomandi. Ekki kom fram á kynningunni í dag hvenær síminn kemur til Íslands.

Fylgst var með kynningunni á vefsíðunni engadget.com, þar er hægt að lesa allt um nýja símann og einnig skoða myndir.

Þá er hægt að horfa á myndband af símanum hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×