Erlent

Stoltenberg-áhrif í Noregi

Jens Stoltenberg
Jens Stoltenberg
NoregurKosningaþátttaka verður meiri í Noregi nú en síðustu ár. Þetta segir kosningasérfræðingurinn Frank Aarebrot hjá Háskólanum í Bergen.

Aarebrot segir að meiri fylgisaukningar gæti hjá Verkamannaflokknum en öðrum flokkum vegna hryðjuverkanna 22. júlí og þess sem hann kallar Stoltenberg-áhrifin. Nýjar skoðanakannanir bendi jafnframt til þess að þátttaka í sveitarstjórnarkosningum sem fara fram í næsta mánuði verði um 70 prósent, sem er næstum tíu prósentum meira en þegar kosið var fyrir fjórum árum. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×