Erlent

Skotinn í hálsinn í átökum glæpasamtaka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögregla í Danmörku rannsakar málið. Mynd/ AFP.
Lögregla í Danmörku rannsakar málið. Mynd/ AFP.
Tveir ungir menn eru alvarlega særðir eftir að þeir voru skotnir margsinnis í Køge í Danmörku í nótt. Annar mannanna er leiðtogi glæpasamtakanna Black Cobra, segir fréttastofa TV2. Mennirnir voru skotnir um hálffjögurleytið í nótt að dönskum tíma, eða um hálftvö að íslenskum. Lögreglan á Mið- og Vestursjálandi segir að ástæður skotárásarinnar sé persónulegt uppgjör. Fréttavefur Ekstrabladet fullyrðir að annar mannanna hafi verið skotinn í hálsinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×