Innlent

Afleitt veður á Hellisheiði, blint á Reykjanesbraut

Afleitt veður er nú á Hellisheiði og ráðleggur lögreglan á Selfossi ökumönnum að leggja ekki á hana að svo stöddu. Þar er mjög blint og sumstaðar farið að draga í skafla.

Þá er mjög blint og hált á Reykjanesbrautinni, að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum, og sömu sögu er að segja af Grindavíkurvegi.

Þæfingur er víða á götum á höfuðborgarsvæðinu en þó allstaðar fært. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bendir ökumönnum á að tafir geti orðið í umferðinni í morugnsárið og rétt sé að leggja fyrr af stað en ella.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×