Innlent

Björgunarsveitir leita að Skotanum

Frank Dalgarno er talinn vera í svartri North Face úlpu, brúnum skóm og bláaum gallabuxum
Frank Dalgarno er talinn vera í svartri North Face úlpu, brúnum skóm og bláaum gallabuxum
Lögregla og björgunarsveitir leita enn að Frank Dalgarno, Skota á sextugsaldri sem búsettur er í Sandgerði. Ekkert hefur spurst til hans frá 26.janúar. Hann er talinn vera í svartri North Face kuldaúlpu, brúnum leðurskóm og bláum gallabuxum.

Í nótt leituðu fimm teymi björgunarsveitamanna með leitarhunda á svæðinu en hundarnir ná bestum árangri þegar áreiti er lítið frá umhverfinu. Sú leit bar lítinn árangur.

Í morgun var síðan hafin leit innanbæjar í Sandgerði og nánasta umhverfi þorpsins auk þess sem kafarar leita í höfninni. Um 70 manns úr björgunarsveitum taka þátt en gert er ráð fyrir að þeim fjölgi þegar líða tekur á daginn.

Veðurspá dagsins er óhagstæð, gert er ráð fyrir snjókomu eða slyddu á svæðinu og miklum vindi eða 20-25 m/sek.

Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir Franks, hafi samband við lögreglu í síma 112, eða 4201800




Fleiri fréttir

Sjá meira


×