Bærinn gerir nýja leið að gömlum vita 2. febrúar 2011 10:00 Viiastígur 12. Margir fara í gegnum garðinn á Vitastíg 12 til að komast að 110 ára gömlum vita sem stendur þar fyrir aftan hús. Vitinn er friðaður og í ágætu standi. FRéttablaðið/Stefán „
Við erum að reyna að tryggja skilgreinda aðkomu að vitanum,“ segir Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri í Hafnarfirði, um vandamál sem skapast vegna áhuga manna á að skoða gamlan vita í bænum. Eins og sagði frá í Fréttablaðinu á mánudag er sá nágranni vitans sem næstur honum býr, Helgi Arndal Davíðsson á Vitastíg 12, langþreyttur á því að áhugafólk um vitann gangi fyrir garðinn hans til að komast að mannvirkinu. Helgi vill helst að vitinn verði hreinlega fluttur annað en að minnsta kosti að hann verði girtur frá lóð hans. Bæjarstjórinn segir það naumast koma til greina að færa vitann. „Vitinn myndi tapa miklu gildi sínu af hann væri færður. Það á að reyna að tryggja að hann geti verið áfram þar sem hann er enda er vitinn hluti af bæjarmyndinni og myndi missa marks á öðrum stað,“ segir Guðmundur. Hann bendir á að vitinn, sem byggður var árið 1900 en tekinn úr notkun árið 1979, sé eitt helsti kennileiti Hafnfirðinga. Helgi býr ofan við vitann en Guðmundur bæjarstjóri segir skipulags- og byggingaráð um hríð meðal annars hafa skoðað þann möguleika að skapa gönguleið neðan frá, eða af Hverfisgötu. Málið hafi meðal annars verið rætt á fundi ráðsins í gær. „Það er alveg rétt að aðkoman er til vandræða og ég hef mikla samúð með sjónarmiðum mannsins. Það er alveg rétt sem hann segir að þetta hefur kostað átroðning hjá honum og það er auðvitað ekki gott,“ segir bæjarstjórinn. gar@frettabladid.is
Tengdar fréttir Nágranni vita þorir ekki að vera nakinn „Bærinn treystir bara á að fólk geti vaðið yfir garðinn hjá mér og garðana í kring,“ segir Helgi Arndal Davíðsson, íbúi á Vitastíg 12 í Hafnafirði, sem er langþreyttur á umferð að gömlum vita við baklóð hans. 31. janúar 2011 05:00 Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Innlent Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Innlent Orsök veikindanna enn á huldu Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent Fleiri fréttir Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Sjá meira
Nágranni vita þorir ekki að vera nakinn „Bærinn treystir bara á að fólk geti vaðið yfir garðinn hjá mér og garðana í kring,“ segir Helgi Arndal Davíðsson, íbúi á Vitastíg 12 í Hafnafirði, sem er langþreyttur á umferð að gömlum vita við baklóð hans. 31. janúar 2011 05:00