Erlent

Eddie Murphy kynnir Óskarinn

Eddie Murphy mun kynna Óskarinn
Eddie Murphy mun kynna Óskarinn mynd úr safni
Gamanleikarinn Eddie Murphy verður kynnir á næstu Óskarsverðlaunahátíð sem verður haldin í febrúar á næsta ári. Þetta hafa forsvarsmenn hátíðarinnar staðfest en sterkur orðrómur hefur verið síðustu vikur um að leikarinn myndi kynna hátíðina.

Murphy mun feta í fótspor leikaranna Billy Crystal, David Letterman, Chris Rock og Steve Martin svo einhverjir séu nefndir.

Murphy sló fyrst í gegn á áttunda ártuginum þegar hann kom fram sem uppistandari í þættinum Saturday Night Live.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×