Erlent

Mamma fangelsuð fyrir að aka á móti umferð

Þriggja barna móðir í Bretlandi sem ók gegn umferð á M5 hraðbrautinni um 50 kílómetra leið í sumar hefur verið dæmd í níu mánaða fangelsi. Dómari úrskurðaði þetta í morgun en konan var undir miklum áhrifum áfengis. Hún grét í réttarsal í morgun þegar dómurinn féll og bar við alkóhólisma og vandræðum í einkalífi sínu.

Dómarinn sagði hinsvegar ótrúlegt að enginn skyldi slasast við athæfið en konan ók á rúmlega 100 kílómetra hraða í myrkri gegn umferðinni. Að auki var bíllinn sem hún var á ótryggður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×