Innlent

Opnir fundir verða haldnir

valgerður bjarnadóttir
valgerður bjarnadóttir
Utanríkismálanefnd mun halda opna fundi um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ítrekaði kröfu sína á fundi nefndarinnar í gær. Samþykkt var að bíða eftir formanninum, Árna Þór Sigurðssyni, sem væntanlegur var til landsins í gær, og ákveða fyrsta opna fundinn í dag.

Valgerður Bjarnadóttir, varaformaður nefndarinnar, segir sjálfsagt að verða við kröfu um opna fundi, en þeir verði ekki reglulegir heldur af ákveðnu tilefni.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×