Innlent

Sex sjúkrabílar sendir á slysstað

Sex sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Myndin er úr safni.
Sex sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Myndin er úr safni.

Sex sjúkrabílar voru sendir á slysavettvang á Reykjanesbrautinni við Kúagerði. Þar varð árekstur vegna mikillar hálku rétt fyrir klukkan fjögur í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu voru einnig tveir slökkviliðsbílar sendir á vettvang. Allnokkrir hafa verið fluttir á spítala en ekki fást upplýsingar um það hvort ökumenn eða farþegar séu mikið slasaðir.

Lögreglan auk sjúkraflutningsmanna eru að störfum. Samkvæmt sjónarvotti sem hafði samband við Vísi lentu í það minnsta tveir bílar í hörðum árekstri.

Miklar tafir eru á umferð vegna slyssins.

Vegagerðin varar við flughálku á Reykjanesbraut og unnið er við söltun.




Tengdar fréttir

Harður árekstur á Reykjanesbrautinni

Umferðarslys varð á Reykjanesbrautinni, í Kúagerði nærri Straumsvík, fyrir stundu. Vegfarandi sem hafði samband við Vísi sagði glerhált á Reykjanesbrautinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×