Erlent

Assad segist hafa hætt hernaðaraðgerðum í Sýrlandi

Assad Sýrlandsforseti heldur því fram að hernaðaraðgerðum gegn andófsmönnum í landinu hafi verið hætt.  

Þetta kom fram í símtali Assads við Ban Ki-moon framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi. Ban Ki-moon krafðist þess að ofbeldinu gegn almenningi í Sýrlandi yrði hætt og þá sagði Assad að svo væri.

Hinsvegar berast enn fréttir af því að skriðdrekar séu til staðar á götum hafnarborgarinnar Latakia og að búið sé að handtaka um hundrað borgarbúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×