Erlent

Bjargaði móður auðkýfings úr brennandi húsi

Kate Winslet
Kate Winslet Mynd úr safni
Auðkýfingurinn Sir Richard Branson hefur þakkað leikkonunni Kate Winslet fyrir að bjarga níutíu ára gamallri móður sinni út úr brennandi húsi sínu á Necker-eyju í Karabískahafinu í gær.

Fellibylurinn Írena gengur nú yfir hafið og talið er að eldingu hafi lostið niður í húsið og kveikt eldinn. Kate var á meðal tuttugu gesta í húsi Bransons sem náðu að komast út úr húsinu áður en það varð alelda.

Húsið er gjörónýtt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×