Erlent

21 árs karlmaður drepinn af hákarli

Hákarlinn reif neðri hluta mannsins af.
Hákarlinn reif neðri hluta mannsins af. Mynd/AFP
Maðurinn var í hópi vina á brimbretti við Bunker Bay, vinsælan ferðamannastað á vesturströnd Ástralíu í gær, þar sem krökkt var af fólki. Hákarlinn náði manninum, dró hann út úr hópnum og beit af honum neðri hluta líkamans. Ströndinni var lokað og er hákarlsins enn leitað af bátum og flugvélum. Ekki er vitað með vissu hvaða tegund hákarls var að verki en líklegt er talið að það hafi verið hvítur hákarl.

Samkvæmt Sky fréttastöðinni segja lögregluyfirvöld móður fórnarlambsins fyrst og fremst hafa viljað vita hvort sonur hennar hafi þjáðst en miðað við hvernig líkið var útleikið mætti segja með vissu að þetta hafi tekið fljótt af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×