Innlent

Mótmæla harðlega niðurskurði í velferðarmálum

Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu mótmæla harðlega frekari niðurskurði í velferðarmálum á fjárlögum næsta árs samkvæmt tilkynningu frá aðildarfélögunum en félagsfundur samtakanna var haldinn á Hrafnistu í Kópavogi um helgina.

Í ályktun sem samþykkt var á fundinu kom fram að undanfarin ár hafa framlög til velferðarþjónustu lækkað verulega þrátt fyrir kröfur um aukna þjónustu og síhækkandi rekstrarkostnað.

„Aðildarfélög Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) hafa undanfarin þrjú ár hagrætt verulega í rekstri sinna stofnana,“ eins og segir í tilkynningunni.

Svo segir orðrétt:

„Framlög til aðildarfélaga SFH hafa verið skert einhliða um allt að 17% milli ára  hvort sem um er að ræða daggjöld eða undirritaða þjónustusamninga.  . Nú er svo komið að ekki verður gengið lengra í niðurskurði án þess að hættuástand skapist.

Félagsfundur SFH krefst þess að stjórnvöld taki fullt tillit til þeirra launahækkana sem orðið hafa á árinu og þess stóraukna kostnaðar sem orðið hefur á aðkeyptri þjónustu og vörum, til samræmis við launavísitölur og vísitölu neysluverðs. Verði það ekki gert á fjárframlögum 2012 til aðildarfélaga SFH, lýsa aðildarfélögin hér með yfir að ekki verði mögulegt að veita alla þá lögbundnu þjónustu sem þeim er ætlað.

Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu eru regnhlífarsamtök 33 stofnana sem sinna öldrunarþjónustu, endurhæfingu og ýmis konar annarri heilbrigðisþjónustu.“

Aðildarfélög SFH eru:

Ás Hveragerði       

Dalbær Dalvík       

Droplaugarstaðir Reykjavík       

Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi       

Eir hjúkrunarheimili Reykjavík       

Fellsendi Dalasýslu       

Garðvangur Garði       

Grund Reykjavík       

Heilsustofnun NLFÍ Hveragerði       

Hjallatún Vík í Mýrdal       

Hlévangur Reykjanesbæ       

Holtsbúð Garðabæ       

Hornbrekka Ólafsfirði       

Hrafnista Reykjavík       

Hrafnista Hafnarfirði       

Hrafnista Kópavogi       

Hraunbúðir Vestmannaeyjum       

Hulduhlíð Eskifirði       

Hvammur Húsavík       

Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili Akranesi       

Krabbameinsfélag Íslands Reykjavík       

Kumbaravogur Stokkseyri       

Lundur Hellu       

Mörk hjúkrunarheimili Reykjavík       

S.Á.Á. Reykjavík       

Seljahlíð Reykjavík       

Sjálfsbjargarheimilið Reykjavík       

Skjól, hjúkrunarheimili, Reykjavík       

Skógarbær Reykjavík       

Sóltún Reykjavík       

Sunnuhlíð Kópavogi       

Uppsalir Fáskrúðsfirði       

Öldrunarstofnanir Akureyrarbæjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×