Ögmundur segist ekki hafa verið í hættu SB skrifar 8. maí 2011 18:40
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir að hann og fjölskylda sín hafi ekki verið í hættu þegar ráðist var að húsi hans aðfaranótt laugardags og rúður brotnar. Glerbrotum rigndi yfir ráðherrann sem sat í stofunni ásamt eiginkonu sinni. Tvær rúður voru brotnar á heimili Ögmundar og var fjölmennt lið lögreglu kallað út til að tryggja öryggi ráðherrans. Samkvæmt heimildum fréttastofu ríkti einskonar umsátursástand við heimili ráðherrans þessa nótt. Ögmundur hafði þetta um árásina að segja nú snemma í morgun þegar hann mætti í viðtal til Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni. „Ég er ekki kominn í þetta viðtal til að ræða þetta mál," sagði Ögmundur þegar hann var spurður að því hvað hefði átt sér stað. . Hann segir málinu hafa lokið blessunarlega og allir séu við góða heilsu. Síðustu vikur hefur Ögmundur verið í sviðsljósinu vegna umdeildra mála. Hann skar upp herör gegn Hells Angels og glæpagengjum á Íslandi og boðaði forvirkar rannsóknaraðgerðir. Og nú fyrir helgi reyndi hælisleitandi að kveikja í sér í húsi Rauða Krossins en málefni pólitískra flóttamanna eru á forræði Innanríkisráðuneytisins. Spurður hvort árásin á föstudag tengdist þessum málum svaraði Ögmundur: „Mér er ekki kunnugt um það hvaða tengsl kunna að vera þar á milli." Erfitt hefur reynst að fá upplýsingar um málið frá lögreglunni en aðgerðirnar á aðfaranótt föstudags voru á forræði Ríkislögreglustjóra. Málið er þó litið mjög alvarlegum augum hjá lögreglunni og hefur eftirlit með heimili hans verið hert. Enginn hefur verið handtekinn vegna þessa.
Mest lesið „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Ferðamennirnir ófundnir Innlent Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Innlent Harris orðin frambjóðandi demókrata og kynnir varaforsetaefni sitt Erlent Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Innlent Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Innlent Níu starfsmenn UNRWA reknir vegna aðildar að árásunum 7. október Erlent Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael Erlent Fleiri fréttir Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Ferðamennirnir ófundnir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Sjá meira