Laxveiðin hefst með lúðraþyt í Skotlandi 29. janúar 2011 04:00 Við opnun Helmsdale fékk Orri tækifæri til að taka fyrstu köst sín með flugustöngina á þessu ári. Annar veiðimaður landaði níu punda laxi. Mynd/Glyn Satterley
Laxveiði ársins 2011 er hafin í ánni Helmsdale í Skotlandi. Þar byrjuðu heimamenn og gestir veiðarnir fyrir rúmum tveimur vikum með mikilli viðhöfn. Meðal boðsgesta við opnunina var laxverndarfrömuðurinn Orri Vigfússon. Áður en veiðarnar hófust skemmtu menn sér árla morguns við hefðbundinn sekkjapípuleik og skoska dansa. Veiðimaðurinn Richard Bain landaði síðan einum níu punda laxi. Telja kunnugir það vita á gott fyrir veiðitímabilið. Michael Wigan, talsmaður Helmsdale, sagði nokkuð hugrekki þurfa til að veiða í ánni janúar. „En fiskurinn á fyrsta degi sýnir að það borgar sig. Við skulum vona að þetta verði frábært veiðitímabil," er haft eftir Wigan í frétt frá NASF, verndarsjóði villtra laxa í Norður-Atlantshafi, sem Orri stýrir. Orri segir við Fréttablaðið að opnun Helmsadale dragi jafnan marga að. Hann nýtti áhugann til að koma verndarsjónarmiðum á framfæri. „Við vorum líka í sjónvarpi og í blöðunum þarna því við erum að berjast fyrir því Skotar hætti sínum netaveiðum laxi í sjó og færi eldisiðnaðinn í betra og sjálfbært horf," segir hann. Í blaðinu The Press and Journal er haft eftir Orra að þótt mikil framför hafi orðið í þessum efnum í Skotlandi sé þar enn langur vegur ófarinn. Lífríkið í Helmsdale hefur þá sérstöðu að njóta vatnsmiðlunar frá stærsta uppistöðulóni Skotlands. Ef frost ógnar hrognum í jaðri árinnar er hægt að auka vatnsstreymið til að vernda þau. Og í þurrkum er hægt að auka vatnsstreymið til að auðvelda laxi við ósana að ganga í ána áður en hann verður sel að bráð. Þess má geta að laxveiði á Íslandi hefst ekki fyrr en í júní. gar@frettabladid.is
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Innlent Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Innlent Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Innlent Fleiri fréttir Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Sjá meira