Innlent

Enn leitað að þeim sem réðist á norskan ferðamann

Lögreglan á Suðurnesjum leitar enn ræningjans, sem réðist á norskan ferðamann í Keflavík í fyrrinótt, rændi hann og veitti honum áverka á hálsi.

Engin virðist hafa verið vitni að árásinni, en lögregla hefur talað við fólk, sem vissi eitthvað um ferðir Noðrmannsins fyrr um kvöldið.

Með aðstoð lögreglunnar komst Norðmaðurinn til síns heima í gærmorgun, en ræninginn hafði af honum flugmiðann, ásamt vegabréfi, greiðslukortum, peningum og skilríkjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×