Innlent

Formsatriðin mesti kosningaglæpur lýðræðissögunnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þórhildur segir að formsatriðin, sem hafi þó engin áhrif haft á niðurstöður kosninganna, séu mesti kosningaglæpur lýðræðissögunnar. Mynd/ Stefán.
Þórhildur segir að formsatriðin, sem hafi þó engin áhrif haft á niðurstöður kosninganna, séu mesti kosningaglæpur lýðræðissögunnar. Mynd/ Stefán.
Formsatriðin sem réðu úrskurði Hæstaréttar, en höfðu engin áhrif á niðurstöðu kosningarinnar, eru mesti kosningaglæpur sem framinn hefur verið í vestrænu lýðræðisríki, fyrr og síðar. Þetta er í það minnsta sú ályktun sem Þórhildur Þorleifsdóttir, sem kjörin var á þingið, segir að hægt væri að draga eftir málstofu lagadeildar HÍ um úrskurð Hæstaréttar í dag.

„Ef að þeir geta ekki nefnt dæmi um ógildingu lýðræðislegra kosninga þá hlýtur þetta að vera mesta afbrot sem framin hafa veirð í kosningasögu lýðræðisríkja," segir Þórhildur í samtali við Vísi. Þórhildur segist reyndar ekki hafa lögfræðiþekkingu til þess að meta hvort dómurinn hafi komist að réttri niðurstöðu eða ekki. Hins vegar hafi hver lögfræðingur á fætur öðrum lýst efasemdum um ýmsar fullyrðingar sem dómurinn kemur með í úrskurði sínum.

Þórhildur segist ekki geta sagt til um það hvort hún muni bjóða sig fram aftur ef kosið verður að nýju til stjórnlagaþings. „Ég hef ekki fjárhagslega burði til að standa í kosningabaráttu sem mun taka allt annan kúrs en síðast," segir Þórhildur. Hún bendir á að engin kosningabarátta hafi verið háð fyrir síðustu kosningar heldur hafi verið um kynningu að ræða sem fram hafi farið í mestu vinsemd. „Mér blandast ekki hugur um það að ef það verður kosið aftur verða það þrælpólitískar kosningar með öllum þeim öflum sem þá fara í gang, fjármagni, áróðri auglýsingum og mannorðsmeiðingum svo við tökum ekki sterkar til orða," segir Þórhildur.

Hún segist því telja að það yrði eðlilegast að þeir 25 fulltrúar sem voru kosnir yrðu skipaðir á þingið með einhverjum hætti. Það finnst mér lýðræðislegast. Fólk greiddi atkvæði það gerði ekkert rangt. Ég gerði heldur ekkert rangt eða aðrir frambjóðendur og því skylid þessi kosning verða ógild útaf formsatriðum," segir Þórhildur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×