Innlent

Átta sluppu vel í bílveltum

Ökumaður og þrír farþegar sluppu nær ómeiddir þegar bíll valt í mikilli hálku út af Vesturlandsvegi norðan við Akrafjall í gærkvöldi og valt þrjár veltur.

Fólkið var flutt til skoðunar á sjúkrahúsið á Akranesi og munu einhverjir hafa hlotið hálshnykki. Allir fjórir sluppu líka ómeiddir þegar bíll valt út af þjóðveginum í Fagradal á Austurlandi í gærkvöldi.

Talið að ökumaður hafi misst stjórn á honum í mikilli hálku, sem var víða á Fljótsdalshéraði í gærkvöldi. Ekki er vitað um fleiri óhöpp á svæðinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×