Konungur lofar bót og betrun 16. febrúar 2011 06:00 Þúsundir mótmæla í Barein. Konungur landsins lofar að hraða umbótum og heitir rannsókn á dauðsföllum.nordicphotos/AFP
Þúsundir mótmælenda flykktust inn á aðaltorgið í höfuðborg Barein í gær, á þriðja degi mótmæla sem kostað höfðu tvo menn lífið. Lögreglan hafði tekið harkalega á mótmælendum en í gær brá svo við að Hamid bin Isa al Khalifa, konungur landsins, ávarpaði þjóðina í sjónvarpi, lofaði því að dauðsföllin tvö yrðu rannsökuð og hét því að hraða umbótum í landinu, meðal annars að losa um hömlur á notkun internets og fjölmiðla. Her og lögregla virtust halda aftur af sér í gær, þegar mannfjöldinn streymdi inn á Perlutorgið í höfuðborginni Manama. Mótmælendurnir virðast flestir vera sjía-múslimar, öfugt við konungsfjölskylduna, sem er súnní-trúar. Mótmælendurnir krefjast þess meðal annars að súnní-múslimar, sem eru 70 prósent landsmanna, njóti ekki forréttinda og krefja konungsfjölskylduna um að gefa öðrum kost á að taka þátt í ákvörðunum um landshagi. Spenna milli súnní-múslima og sjía hefur lengi verið mikil í landinu. Á síðasta ári brutust út nokkurra vikna átök eftir að andóf sjía-múslima var barið niður af hörku. Ekkert lát er á mótmælaólgu víða í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum í kjölfar mótmælanna í Egyptalandi og Túnis, sem náðu þeim árangri að forsetar þessara tveggja landa hröktust frá völdum.- gb
Mest lesið Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Innlent Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Innlent Ferðamenn í báðum bifreiðum Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Innlent Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Innlent Stærra eldgos væntanlegt Innlent Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Innlent Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Innlent Fleiri fréttir Pútín hótar hefndum fyrir innrásina í Kúrsk Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Stúlka og kona stungnar á Leicester torgi Dró framboðið til baka til að forðast innanflokkserjur Vonir bundnar við „heilagan kaleik“ við sykursýki týpu 1 Tom Cruise seig og sveif og tók við fánanum fyrir hönd Los Angeles Miklir eldar í grennd við Aþenu USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda Búið að slökkva eldinn í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu Eldur í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu Úkraínumenn vilji valda upplausn Úkraínski herinn kominn um 30 kílómetra inn í Rússland Segir Írani hafa hakkað tölvupósta framboðsins Varð vitni að árásinni sem varð systur hennar að bana Sextíu og einn látinn eftir flugslysið í Brasilíu Gerðu loftárás á skóla í nótt Rússar lýsa yfir neyðarástandi Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Andmæla ekki notkun vestrænna vopna í áhlaupi á Rússland Þriðja ungmennið handtekið í tengslum við Swift-tónleikana Maduro lokar X í tíu daga Segir Puigdemont flúinn frá Spáni aftur Ísraelar aftur að samningaborðinu í næstu viku Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Emhoff viðurkennir að hafa haldið framhjá fyrstu eiginkonu sinni Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Trump vill mæta Harris þrisvar í kappræðum Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna Leiðtogi sjálfstæðissinna í felum fyrir katalónsku lögreglunni Sjá meira