Innlent

Meirihluti hlynntur Nubo

Huang Nubo.
Huang Nubo.
Meirihluti landsmanna er hlynntur því að leyfa kínverska kaupsýslumanninum Huang Nubo að kaupa stóra landareign á Grímsstöðum á Fjöllum, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi.

Alls sagðist 59,1 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni mjög eða frekar hlynnt því að Nubo fengi að kaupa landið. Um 22,7 prósent sögðust hlutlaus og 18,2 prósent sögðust mjög eða frekar andvíg því að kaupin næðu fram að ganga.

Karlar eru samkvæmt könnuninni frekar hlynntir kaupunum. Um 65,2 prósent þeirra vilja heimila þau en 52,9 prósent kvenna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×