Erlent

Konungur Jórdaníu rekur forsætisráðherrann

Abdullah Jórdaníukonungur.
Abdullah Jórdaníukonungur.
Abdullah, konungur Jórdaníu, hefur rekið forsætisráðherra sinn og falið öðrum að mynda nýja ríkisstjórn. Konungurinn grípur til þessara aðgerða í kjölfar mikilla mótmæla í landinu, en þar eins og víða annarsstaðar í miðausturlöndum hefur almenningur mótmælt lökum kjörum sínum og harðræði frá hendi stjórnvalda.

Í Jórdaníu hafa mótmælin helst beinst að ríkisstjórninni sem kennt er um hækkandi matvælaverð í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×