Varað við vatnavöxtum í Hvítá Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. janúar 2011 13:51 Hvítá.
Veðurstofan varaði í morgun við Vatnavöxtum í Hrunamannahreppi, nánar tiltekið á vatnasviði Hvítár. Hlýtt hefur verið á hálendinu og mikið rigning á suðvesturhluta þess. Rennslið hefur því vaxið töluvert í ánni. Ragnar Magnússon, bóndi og oddviti Hrunamannahrepps, var í þann mund að fara að skoða aðstæður þegar Vísir náði af honum tali um hálftvöleytið í dag. Hann sagðist þá hafa heyrt að vatnavextirnir væru ekkert í líkingu við það sem var árið 2006. „Þetta er ekki orðið neitt svakalegt ennþá allavega. Það er nú trúlega ekkert mjög mikill snjór á hálendinu til að bræða. En það er ansi hlýtt," segir Ragnar. Ragnar segir að það sé alltaf hætta á að tún skemmist við þær aðstæður sem eru núna. „Það er náttúrlega alltaf hætt við því ef þetta fer yfir túnin núna þegar það er búið að vera svona hlýtt í nokkra daga að klakar og annað slíkt rífi upp rótina þar sem hún er alveg máttlaus þar sem er búið að þiðna," segir Ragnar. Samkvæmt upplýsingum frá vatnamælingamanni hjá Veðurstofunni er búist við því að vatnavextirnir í Hvítá nái hámarki einhvern tímann í kvöld. Einnig hafa verið leysingar og vatnavextir í Borgarfirði. Norðurá er á vöktunarplani en ekki hefur enn komið til þess að vara þyrfti við vatnavöxtum í ánni.
Mest lesið Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Fjögurra daga gamlir tvíburarnir fórust á meðan faðirinn brá sér frá Erlent Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Innlent Rannsaka innbrot og mögulega vatnsmengun á herstöð í Þýskalandi Erlent Gena Rowlands er látin Erlent Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Innlent Neyðarástandi lýst yfir vegna apabólu í hluta Afríku Erlent Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Innlent Gaukarnir gista og fá snyrtingu Innlent Fleiri fréttir Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Sjá meira