Erlent

Mubarak ætlar að hætta

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mubarak ætlar að hætta eftir næstu kosningar. Mynd/ afp.
Mubarak ætlar að hætta eftir næstu kosningar. Mynd/ afp.
Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, ætlar ekki að bjóða sig fram í endurkosningum sem fram fara í landinu í september. Gríðarleg mótmæli hafa verið gegn stjórn hans að undanförnu og fara þau enn vaxandi. Í sjónvarpsávarpi sem Mubarak hélt í kvöld hét hann endurbótum á stjórnarfari í landinu en sagði að hann myndi sitja í embætti sínu út kjörtímabilið. Milljónir manna hafa safnast saman á götum Kaíró til þess að hvetja Mubarak til að segja af sér embætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×