Innlent

Stálu tækjum sem eru milljóna virði úr bíl

Lögreglan á Selfossi óskar eftir upplýsingum frá almenningi varðandi innbrot í lítinn sendibíl sem brotist var inní aðfararnótt sunnudags. Þjófarnir höfðu töluvert af þýfi upp úr krafsinu samanlagt að virði tveggja til fjögurra milljóna króna.

Bíllinn sem um ræðir er af gerðinni Renault Kangoo og stóð hann við Kambahraun 54 í Hveragerði. Í bifreiðinni voru mörg verðmæt tæki sem öllum var stolið. Meðal þess sem hvarf var, Garmin GPS, loftnetsmælir, ljósleiðaratengivél, fartölva, bor- og fleygvél, rafhlöðuborvélar og ýmiss konar mælitæki.

Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480 1010.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×