Innlent

Harður árekstur á Reykjanesbrautinni

Umferðarslys varð á Reykjanesbrautinni, í Kúagerði nærri Straumsvík, fyrir stundu. Vegfarandi sem hafði samband við Vísi sagði glerhált á Reykjanesbrautinni.

Svo virðist sem fólksbifreið hafi skollið á aðra bifreið en ekki vitað um tildrög slyssins. Vegfarandinn sagði áreksturinn harðann.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er sjúkrabíll á leiðinni á vettvang og því ekki hægt að veita nánari upplýsingar að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×