Erlent

Þernan kærir Strauss-Kahn

Hótelþernan sem Dominique Strauss-Kahn er grunaður um að hafa nauðgað hefur höfðað einkamál á hendur honum. Hún krefst skaðabóta en upphæðin sem hún krefst hefur ekki verið gefin upp.

Í kærunni kemur fram að Strauss-Kahn hafi ráðist á Nafissatou Diallo á grófan og ofbeldisfullan hátt á Sofitel-hótelinu sem hún starfar á. Hann var handtekinn 14. maí vegna málsins og er óheimilt að yfirgefa Bandaríkin á meðan málið er í rannsókn. Hann mun koma fyrir rétt á nýjan leik 23. þessa mánaðar. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×