Erlent

Malta: Um þriðjungur tekna úr tolli

Þriðjungur tekna ríkisstjórnar Möltu kemur úr tollinnheimtu. Þetta sagði Tonio Fenech á dögunum, en hann er fjármála-, efnahags- og fjárfestingaráðherra Möltu.

Haft er eftir Fenech í Malta Independent að maltneskir tollgæslumenn gegni sérstökum skyldum í samfélaginu því störf þeirra fjármagna menntun landsmanna, heilbrigðismál og ýmsa innviði samfélagsins.

Malta er í Miðjarðarhafi fyrir sunnan Sikiley og mikið siglingaveldi. Varningur sem fer þar í gegn er oft á leiðinni norður í önnur ríki ESB. - kóþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×