Ingi Freyr krefst ómerkingar tíu ummæla Agnesar 3. febrúar 2011 11:00 Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Segir afsökunarbeiðni í Morgunblaðinu óásættanlega.
Ingi Freyr Vilhjálmsson, fréttastjóri á DV, krefst þess að tíu ummæli í fréttum sem Agnes Bragadóttur skrifaði í Morgunblaðið um málefni njósnatölvunnar á Alþingi verði dæmd dauð og ómerk. Þá hefur Ingi jafnframt stefnt Agnesi til að greiða sér tvær milljónir króna í miskabætur vegna fréttaflutningsins. Agnes lét að því liggja í skrifum sínum að Ingi hefði fengið ungan mann undir lögaldri til að stela fyrir sig gögnum úr tölvum gegn þóknun og staðhæfði að hann hefði stöðu grunaðs manns í lögreglurannsókn á því máli. Þá var lögregla sögð rannsaka hvort maðurinn ungi sem grunaður er um þjófnaðinn tengdist máli njósnatölvunnar, meðal annars vegna meintra tengsla hans við Wikileaks og Inga Frey. Lögmaður Inga Freys, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, gaf Agnesi og Morgunblaðinu frest til klukkan fjögur síðdegis á mánudag, daginn sem umrædd frétt birtist, til að leiðrétta hana, biðjast afsökunar og greiða milljón króna í miskabætur. Morgunblaðið baðst í gær velvirðingar á missögnum í fréttinni en Vilhjálmur segir þá leiðréttingu allsendis ófullnægjandi. Agnes var skrifuð fyrir fréttinni með fullu nafni og segir Vilhjálmur að hún beri því ein ábyrgð á fréttinni. Henni verður af þeim sökum einni stefnt í málinu. Auk framangreindra atriða verður þess krafist að Agnes verði dæmd til refsingar sem getur numið allt að tveggja ára fangelsi, til að greiða hálfa milljón í birtingarkostnað á dómnum, auk þess sem Morgunblaðinu verði gert að birta dóminn. Málið verður að óbreyttu þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag. - jss
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Fleiri fréttir Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Sjá meira