Innlent

Neytendasamtökin óska eftir aðstoð frá leigjendum

Upplýsingar skortir um leiguverð á íslenskum markaði
Upplýsingar skortir um leiguverð á íslenskum markaði

Neytendasamtökin hafa lengi furðað sig á því að ekki séu til neinar ábyggilegar upplýsingar um leiguverð á íbúðarhúsnæði. Samtökin hafa því ákveðið að gera könnun á húsaleigu. Án upplýsinga frá leigjendum sjálfum er þó ómögulegt að vinna slíka könnun. Neytendasamtökin óska því eftir upplýsingum frá sem flestum leigjendum svo könnunin gefi rétta mynd af þessum ógagnsæja markaði.

Hægt er að taka þátt í rafrænni könnun sem er aðgengileg á heimasíðu samtakanna ns.is, einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Neytendasamtakanna símleiðis í s. 5451200, í tölvupósti á netfangið hh(hjá)ns.is eða með því að senda umbeðnar upplýsingar á skrifstofu samtakanna Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.

Upplýsingar sem þurfa að koma fram:

Í hvaða póstnúmeri leigir þú?

Hvað er íbúðin mörg herbergi?

Hvað er íbúðin margir fermetrar?

Hvað greiddir þú í leigu 1. febrúar sl.?

Hver er leigusali, þ.e. einstaklingur eða félag og ef félag, þá hvaða félag (ekki er óskað eftir nöfnum einstaklinga sem eru leigusalar)?

Engar persónugreinanlegar upplýsingar munu verða gefnar upp í niðurstöðum og nöfn svarenda munu hvergi koma fram








Fleiri fréttir

Sjá meira


×