Innlent

Lögreglan stöðvaði sextán ára ökuþór

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sextán ára gamlan ungling á bíl.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sextán ára gamlan ungling á bíl.
Lögreglan stöðvaði í gær sextán ára gamlan pilt sem ók bíl í úthverfi borgarinnar um miðnætti. Eðli málsins samkvæmt hefur pilturinn ekki öðlast ökuréttindi. Þrír jafnaldrar piltsins voru með honum í bílnum. Lögreglan segir að þrátt fyrir ungan aldur hafi þessi sami ökumaður áður gerst sekur um umferðarlagabrot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×