Innlent

Fjórhjólamaður keyrði á barn og stakk af

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um fimmleytið í dag varð umferðaróhapp á Garðagrund á Akranesi á móts við verslunina Samkaup, eða Grundaval. Þar var fjórhjóli ekið á barn sem var á reiðhjóli. Við þetta slasaðist barnið lítillega. Ökumaður fjórhjólsins fór af vettvangi án þess að  huga að barninu eða tilkynna um óhappið.  Þeir sem geta veitt upplýsingar um umferðaróhappið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akranesi í síma 4440111.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×