Óvissa um frekari lækkun bensínverðs 7. maí 2011 10:00 Dropinn lækkar Eldsneytisverð hefur lækkað að undanförnu í samræmi við olíuverð á heimsmarkaði. Fréttablaðið/gva
Verð á eldsneyti lækkaði um þrjár krónur á flestum útsölustöðum í gær og fyrradag, en þessar lækkanir eru í samræmi við sviptingar á heimsmarkaðsverði síðustu daga. Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði um tíu prósent á fimmtudag og verð á bensíni lækkaði um fjögur prósent. Lækkunin gekk lítillega til baka í gær, en óvissa er um framhaldið bæði hérlendis og erlendis. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segir í samtali við Fréttablaðið að lækkunin á heimsmarkaði hafi verið nokkuð fyrirséð en þó kærkomin. „En ég reikna ekki með frekari lækkunum í byrjun næstu viku, nema ef vera skyldi af samkeppnisástæðum ef aðrir lækka sitt verð.“ Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bíleigenda, tekur undir það að lækkunin hafi verið langþráð og þetta séu góðar fréttir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. „Þetta eru ánægjulegri tíðindi en oft áður. Þetta voru hressileg viðbrögð og í anda þess sem að við höfum verið að sjá á heimsmarkaðsverði og vonandi heldur það áfram.“ Runólfur segir að erfitt sé að segja til um framhaldið, en þó séu þessar lækkanir úr takti við fyrri ár því að venjulega fari verð að hækka þegar líði að sumri og ferðalög aukist. - þj
Mest lesið „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Ferðamennirnir ófundnir Innlent Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Innlent Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Harris orðin frambjóðandi demókrata og kynnir varaforsetaefni sitt Erlent Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Innlent Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Innlent Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Innlent Harris velur ríkisstjóra Minnesota sem varaforsetaefni Erlent Fleiri fréttir Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Ferðamennirnir ófundnir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Sjá meira