Erlent

Stakk mann til bana og stakk af

Mynd tengist ekki frétt
Mynd tengist ekki frétt MYND ÚR SAFNI
Fjórir menn hafa verið handteknir í tengslum við morð í Lundúnum í gærkvöldi.

Morðingi réðst að manni sem sat í bifreið sinni ásamt ungri konu í austurhluta borgarinnar.

Þegar hann neitaði að láta bílinn af hendi stakk morðinginn hann í brjóstið.

Hann dró manninn síðan út úr bílnum og ók á brott.

Sá sem fyrir árásinni var úrskurðaður látinn á staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×