Innlent

Barði mann í hné með hamri

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir tvær líkamsárásir og þjófnað.

Manninum er gefið að sök að hafa kýlt mann fimm sinnum í andlitið á skemmtistaðnum Manhattan í Reykjanesbæ. Tvær tennur brotnuðu í þeim sem ráðist var á. Þá er maðurinn ákærður fyrir að hafa lamið annan mann með hamri í hnéð og kastað hálffullri bjórdós í höfuð hans.

Fórnarlambið hlaut heilahristing og eymsli í hné. Loks er maðurinn ákærður fyrir stuld á skjávarpa að verðmæti 155 þúsund krónur úr skólastofu.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×