Innlent

Skotárásarmenn í Ásgarði ákærðir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mennirnir réðust að íbúð fjölskyldu í Ásgarði.
Mennirnir réðust að íbúð fjölskyldu í Ásgarði.
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur mönnum sem sakaðir eru um að hafa skotið á íbúðarhúsnæði að Ásgarði á aðfangadag.

Eins og fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis greindi frá í lok desember mat lögregla það svo að um tilraun til manndráps hafi verið að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkissaksóknara liggur ekki fyrir hvenær ákæran í málinu verður þingfest.

Fjórir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna árásarinnar, en ekki fást gefnar upplýsingar að svo stöddu um það hversu margir eru ákærðir, né heldur á grundvelli hvaða lagagreinar ákæran er gefin út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×