Innlent

Lúbarði mann með pönnu

Ríkissaksóknari hefur ákært konu á sextugsaldri fyrir að berja mann með pönnu og stórslasa hann. Málið er þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Konan er ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.

Hún er sökuð um að hafa að kvöldi sunnudagsins 25. október 2009 slegið manninn ítrekað í höfuð og andlit með pönnunni. Hann stórslasaðist, hlaut innkýlt kinnbeinsbrot og skurð á vinstra kinnbein sem sauma þurfti saman með níu sporum.

Árásin átti sér stað á heimili konunnar í Reykjanesbæ.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×